K-Tech · Framfjöðrun
Cartridge-kerfi og innvols
KTR-5, DDS, 20IDS, 25IDS, RDS, Tracker, piston kits og gormar.
Ducati · Aprilia · ZXMOTO · Piaggio
Hönnun, afköst og akstursupplifun fyrir fólk sem velur lengri leiðina.
Fjögur sterk vörumerki
valin af ástríðu
MotoGP · Misano 2026
Ein mistök á fyrsta hring sneru titilbaráttunni við. Marc Márquez vann bæði sprettinn og aðalkeppnina og þurrkaði út 102 stiga mun.
14. september 2026 · MotoGP
Misano snýr titilbaráttunni á hvolf
Lesa fréttina ↗
Verslun · Vöruflokkar
Farðu beint í þann flokk sem þú þarft eða notaðu leitina til að finna tiltekna vöru úr öllu skráðu úrvalinu.
Ducati, Aprilia, ZXMOTO og Piaggio.
Skoða úrval ↓ 02
Öll LS2 vörulínan.
Skoða LS2 ↓ 03Daytona skór og stígvél.
Skoða Daytona ↓ 04K-Tech fyrir veg, braut og torfæru.
Skoða K-Tech ↓Leita á síðunni
Leitaðu í öllum skráðum módelum frá Ducati, Aprilia, ZXMOTO og Piaggio ásamt LS2, Daytona og K-Tech fjöðrun.
Ducati · Aprilia · ZXMOTO · Piaggio
Allur alþjóðlegi vörulistinn frá Ducati, Aprilia og Piaggio ásamt úrvali frá ZXMOTO.
LS2 · Hjálmar og fatnaður
137 vörur úr opinberum LS2-vörulistum, þar á meðal 21 ný 2026–2027 módel: 41 hjálmur og 96 fatnaðarvörur. Verð innihalda 24% VSK.
41 hjálmurLS2 · Opinbert vöruúrval
Opinberar aðalmyndir og LS2-vörutenglar. Sýnd verð innihalda VSK og miðast við ódýrustu útfærslu.
Fatnaður · Sérpöntun
Við bjóðum allt úrval Daytona mótorhjólaskóa og -stígvéla í sérpöntun. Hér fyrir neðan geturðu skoðað 39 gerðir með myndum og íslensku verði.
Daytona · Myndir og verð
39 gerðir með nákvæmri mynd úr opinbera Daytona-vörulistanum. Allar gerðir eru sérpantaðar.
| Gerð | Stærðir | Verð með VSK |
|---|
Sérpöntun. Sýnd verð innihalda 24% VSK og eru rúnnuð upp í næstu 1.000 kr. Endanlegt verð er staðfest við pöntun.
Vegur · Braut · Torfæra
Við erum viðurkenndur þjónustuaðili K-Tech og bjóðum K-Tech fjöðrun og íhluti í sérpöntun fyrir götuhjól, brautarhjól, motocross og enduro. Rétt vara er valin eftir hjóli, ökumanni og notkun — ekki með ágiskun.
Stilling · StjórnK-Tech · Núverandi vöruflokkar
Vörur eru sérpantaðar eftir nákvæmri gerð og árgerð hjóls. Verð og afhendingartími eru staðfest áður en pöntun er gerð.
K-Tech · Framfjöðrun
KTR-5, DDS, 20IDS, 25IDS, RDS, Tracker, piston kits og gormar.
K-Tech · Afturdemparar
TRDS, DDS Pro, DDS Lite og Razor-línan fyrir veg, braut og keppni.
K-Tech · Off-road
ORDS, ORSS, ORVS, gormar, piston kits og bladder conversion kits.
K-Tech · Íhlutir
Gormar, shim-plötur, þéttingar, fóðringar, verkfæri og aðrir þjónustuhlutir.
Viðurkennd þjónusta · Verkstæði
Við þjónustum öll vörumerki sem Italis flytur inn og erum jafnframt viðurkenndur K-Tech þjónustuaðili. Veldu almenna mótorhjólaþjónustu eða sérhæfða demparaþjónustu.
Viðhald, þjónustuskoðanir, bilanagreining, viðgerðir og varahlutir fyrir Ducati, Aprilia, ZXMOTO og Piaggio.
Skoða almenna þjónustuViðurkennd K-Tech þjónusta, viðgerðir og uppsetning á framgöfflum og afturdempurum fyrir mótorhjól og önnur mótorsporttæki.
Skoða demparaþjónustu
Demparaþjónusta · Verkstæði
Viðurkennd K-Tech þjónusta · Mótorhjól · Mótorsport
Sem viðurkenndur þjónustuaðili K-Tech þjónustum við framgaffla og afturdempara fyrir götuhjól, brautarhjól, motocross og enduro. Aðrir mótorsportdemparar eru teknir í mat eftir gerð, ástandi og framboði varahluta.
Ekki eru allir demparar þjónustuhæfir. Endanlegt mat ræðst af gerð, ástandi og varahlutaframboði.
Ducati · Aprilia · ZXMOTO · Piaggio · K-Tech
Italis er viðurkenndur þjónustuaðili fyrir öll vörumerki sem fyrirtækið er með og flytur inn. Fagmennska, rétt verklag og traust þjónusta — frá reglubundnu viðhaldi og demparaþjónustu til bilanagreiningar og viðgerða.
Okkar saga
Kjarninn í Italis er ástríða fyrir mótorhjólum og þekking sem hefur verið byggð upp, mæld og sannreynd í meira en fjóra áratugi.
Ég byrjaði í mótorhjólum fyrir rúmum 45 árum og hef síðan byggt upp víðtæka reynslu af viðgerðum, breytingum, uppsetningum og flókinni bilanagreiningu. Ég er menntaður bifvélavirki og hef einnig lokið námi í vélvirkjun.
Keppnisferill minn spannar tæp 40 ár, hér heima og erlendis, í enduro, spyrnu og mótorhjólakappakstri. Á þeim tíma hef ég unnið til fjölda verðlauna, orðið margfaldur Íslands- og bikarmeistari og sett fjölmörg Íslandsmet. Ég hef jafnframt starfað sem MotoGP-kynnir hér á landi.
Með tæknilegri aðstoð, breytingum, uppsetningum og ráðgjöf hef ég einnig hjálpað öðrum keppendum að setja met og vinna titla. Sú reynsla skilar sér beint í þjónustunni sem við veitum viðskiptavinum Italis í dag.
Bifvélavirkjun, vélvirkjun og áratuga reynsla af viðgerðum, sérhæfðum breytingum og markvissri bilanagreiningu.
Ég var fyrstur á Íslandi til að bjóða hestafla- og togmælingar á mótorhjólum — til að sjá með mælanlegum hætti hvað virkar og hvað ekki.
Í gegnum árin hef ég byggt upp öflug sambönd við erlend keppnislið og sérfræðinga sem starfa á efsta stigi mótorsports.
„Þekking verður verðmætust þegar hægt er að mæla árangurinn.“